Smíði og notkun súðbyrðinga, hefðbundinna norrænna trébáta, var þann 14. desember 2021 sett á skrá UNESCO – Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir óáþreifanlegan menningararf. Norðurlöndin stóðu sameiginlega að tilnefningunni en Vitafélagið hafði veg og vanda að undirbúningi hennar fyrir Íslands hönd. Þetta er eina íslenska menningararfleiðin og sú eina samnorræna sem er að finna á þessari skrá.
Á vef Stjórnarráðsins segir um súðbyrðinginn :
„Súðbyrðingur er sérstök norræn gerð báta, sem í tvö þúsund ár hefur skipt sköpum fyrir sjósókn Norðurlandanna. Súðbyrðingar geta verið margvíslegir eftir landssvæðum, en aðferðin við smíði þeirra er sú sama á Norðurlöndunum. Smíði þessara báta byggir á handverkshefð þar sem neðri brún fjalar leggst ofan á efri brún næstu fjalar fyrir neðan. Í upphafi voru borðin saumuð saman áður en trénaglar og síðar járn- og koparnaglar komu til sögunnar. Frá alda öðli hafa súðbyrðingar tengt saman samfélög stranda á milli, fært norrænar þjóðir út í heim og heiminn aftur til Norðurlandanna. Hefðin við smíði og notkun súðbyrðinga er meginþáttur strandmenningar okkar og er sameiginleg arfleifð Norðurlandanna.“